139. löggjafarþing — 47. fundur,  14. des. 2010.

sjúkratryggingar.

191. mál
[14:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta heilbrn. (Þuríður Backman) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum. Verið er að verða við ósk um frestun á gildistöku þessara laga þannig að í stað orðanna, eins og segir í 1. gr.: „1. janúar 2011“ en þá áttu lögin að taka gildi, kemur: „1. janúar 2014.“

Í 2. gr. segir:

„Í stað orðanna „1. janúar 2010“ í 1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum kemur: 1. janúar 2014.“

Lagt er til að þessar breytingar öðlist þegar gildi.

Samkvæmt lögum um sjúkratryggingar skal sjúkratryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands, annast alla samningsgerð um kaup á heilbrigðisþjónustu. Lögin tóku gildi 1. október 2008 en gert var ráð fyrir að ákvæði IV. kafla laganna að því er varðar samninga sem heilbrigðisráðuneytið hefur gert kæmu til framkvæmda eigi síðar en 1. júlí 2009 og gekk það að mestu leyti eftir. Enn fremur var fyrirhugað að ákvæði um samninga við heilbrigðisstofnanir í eigu ríkisins og samninga við sveitarfélög og aðra sem reka hjúkrunarheimili kæmu til framkvæmda eigi síðar en 1. janúar 2010. Það gekk hins vegar ekki eftir og var frestað til 1. janúar 2011 með lögum nr. 121/2009.

Nú er ljóst að enn vantar talsvert upp á að Sjúkratryggingar Íslands verði í stakk búnar að semja við heilbrigðisstofnanir í eigu ríkisins, svo og sveitarfélög og aðra er reka hjúkrunarheimili. Í kjölfar efnahagshrunsins hefur orðið ákveðinn forsendubrestur að því er varðar hugmyndafræði þá sem liggur að baki lögum um sjúkratryggingar. Stofnunin hefur ekki fengið þær fjárveitingar sem nauðsynlegar eru til að hún geti sinnt að fullu því hlutverki sem henni er ætlað samkvæmt IV. kafla laga um sjúkratryggingar og ekki er fyrirsjáanlegt að breyting geti orðið þar á á næstu missirum. Nauðsynlegt þykir því að fresta enn um sinn gildistöku ákvæða um samninga við heilbrigðisstofnanir í eigu ríkisins og samninga við sveitarfélög og aðra er reka hjúkrunarheimili. Af því leiðir að framlengja þarf heimild ákvæðis til bráðabirgða IV til ákvörðunar á daggjöldum vegna hjúkrunarrýma með reglugerð. Lagt er til að gildistöku verði frestað um þrjú ár. Fyrirhugað er á því tímabili að taka lög um sjúkratryggingar til endurskoðunar með hliðsjón af þeim miklu breytingum sem orðið hafa frá því lögin tóku gildi.

Hæstv. forseti. Þegar ég les á því skjali sem hér hefur verið prentað sé ég að prentast hefur út eintak sem tekur ekki að fullu til þeirra breytinga sem lagðar hafa verið til. Heilbrigðisnefndin lagði til að heimilt yrði að fresta til 2011 og ef heilbrigðisráðuneytið og Sjúkratryggingar væru tilbúin til að fara í þessa samningagerð eða gera breytingar fyrr væri það heimilt.