139. löggjafarþing — 53. fundur,  18. des. 2010.

vextir og verðtrygging o.fl.

206. mál
[00:12]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. Þór Saari flutti ágæta ræðu. Hann er greinilega andsnúinn verðtryggingu og það er ég í sjálfu sér líka frá og með deginum í dag. Ég vil spyrja hv. þingmann: Af hverju í ósköpunum sparar hann ekki verðtryggt?