139. löggjafarþing — 107. fundur,  7. apr. 2011.

fjölmiðlar.

198. mál
[13:01]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svarið. Þetta er nákvæmlega það svar sem ég vildi fá og þá bíðum við bara eftir því að nefndin geri breytingartillöguna. Ég tel raunar að þeir ættu frekar að vera tveir en einn af fimm sem fjölmiðlamenn tilnefna og þeir ættu helst ekki, eins og ég sagði, að vera starfandi fjölmiðlamenn og það mætti fækka úr þeim tveimur hópum sem nú eru fyrir hendi. Ég er sumsé ánægður með svarið og vonast til að sjá það rætast við 3. umr.