139. löggjafarþing — 160. fundur,  8. sept. 2011.

fundarstjórn.

[12:19]
Horfa

Forseti (Þuríður Backman):

Forseti vill endurtaka þau orð sem hér hafa komið fram að hann mun kanna hvar málið er statt í vinnslu, hvort það sé komin dagsetning. Beiðnin hefur komið fram og það er verið að vinna að þessu máli þannig að það sé alveg skýrt þeim sem ætla að taka til máls um þetta mál undir dagskrárliðnum fundarstjórn forseta.