139. löggjafarþing — 163. fundur, 14. sept. 2011.
lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Þar sem ekki fékkst svar við þeirri spurningu um hversu lengi forseti hyggist halda fundi áfram hlýt ég að benda á það, eins og sést á atkvæðatöflunni, að ég leggst gegn því að þessi heimild verði veitt og tel að rökin sem hafa verið færð hérna af fulltrúum, alla vega sumra í stjórnarandstöðunni, skýri það mál vel.