140. löggjafarþing — 20. fundur,  10. nóv. 2011.

lengd þingfundar.

[10:36]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um til að ljúka megi 2. umr. um fjáraukalög 2011 ef á þarf að halda.

Tillagan skoðast samþykkt án atkvæðagreiðslu.