140. löggjafarþing — 29. fundur,  30. nóv. 2011.

stuðningur við sjávarútvegsráðherra.

[15:18]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka áhugaverða fyrirspurn og ekki síður auðsýndan áhuga á stöðu mála hjá ríkisstjórnarflokkunum.

Liðskönnun, segir hv. þingmaður og sú er sannarlega tilfinningin, að minnsta kosti akkúrat þessi dægrin. Ég veit ekki hver hefur falið hv. þingmanni að halda um stjórnvölinn í þeirri liðskönnun en ég afþakka þá aðstoð og þann stuðning. Sannarlega hefur umræðan verið krefjandi og alvarleg, hún hefur varðað mikilvæga þætti en hv. þingmanni til upplýsingar er þetta verkefni á hendi ríkisstjórnarflokkanna og verður leyst á þeim vettvangi.