140. löggjafarþing — 53. fundur,  2. feb. 2012.

tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011--2022.

342. mál
[12:41]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég vil bara segja aftur að ég fagna þessu og hvet hæstv. innanríkisráðherra til að halda þinginu vel upplýstu í þessu máli þar sem við horfum upp á sífellt fleiri innan þingsins og meðal almennings mæla fyrir því að við Íslendingar hættum því sem við höfum gert, að taka þessar tilskipanir alveg hráar upp. Ég fagna frumkvæði hæstv. innanríkisráðherra í þessu máli og hvet hann til að halda þinginu það vel upplýstu að við fáum að vita af stöðu þessa máls á öllum stigum þess þegar hann hefur rætt betur við norska kollega sína.