veiðigjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka umhyggjuna sem hv. þingmaður hefur fyrir Sjálfstæðisflokknum, að beina honum á einhverja braut um það hvernig flokkurinn eigi að vinna. Ég held við séum fullfær um það.
(Forseti (ÁI): Má forseti biðja um hljóð í þingsal meðan ræðumaður hefur orðið?)
Ég sagði í ræðu minni áðan og ég er enn þeirrar skoðunar að hver flokkur geti haft sína skoðun á því hvað sé skynsamlegast hverju sinni. Sú skoðun ein og sér getur ekki verið eins og hv. þingmaður lagði til, að henni verði ekki haggað. Með þeim hætti verður aldrei náð neinni sátt. Menn þurfa í þessu máli eins og öllum öðrum að gefa eftir sitthvað af sínu til að ná sameiginlegri sátt um fiskveiðistjórnarkerfið og veiðigjaldið. Þannig er það. Að ætla sér að setja punkt og hvika ekki frá því sjónarmiði get ég ekki stutt.
Ég er ekki sérfræðingur í sjávarútvegsmálum. Ég hef ákveðnar skoðanir á þeim en ég get ekki lagt hér fram lausnir. Ef svo væri mundi ég gera það strax.
(Forseti (ÁI): Forseti hvetur til þess að haldinn sé einn fundur í þingsal.)