141. löggjafarþing — 32. fundur,  8. nóv. 2012.

lengd þingfundar.

[10:33]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um.

Forseti lítur svo á að það sé samstaða um að þingfundur standi að minnsta kosti það sem þarf til að umræðu um 2. dagskrármálið verði lokið.