141. löggjafarþing — 108. fundur,  21. mars 2013.

lengd þingfundar.

[10:34]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? — Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta og hefst nú atkvæðagreiðslan. — Nú virkar tölvukerfið ekki í þessari atkvæðagreiðslu og tekur því forseti næsta dagskrármál á undan.