142. löggjafarþing — 12. fundur,  25. júní 2013.

störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Að gefnu tilefni vill forseti vekja athygli á því að strangar reglur gilda um hagsmunaskráningu þingmanna, strangari reglur en almennt gilda í samfélaginu. Það er eðlilegt og þingmenn hlíta því. Að öðru leyti er það öllum hv. þingmönnum kunnugt að almennar vanhæfisreglur gilda ekki um þingmenn enda vandséð með hvaða hætti hægt væri að fylgja þeim eftir.