143. löggjafarþing — 10. fundur,  16. okt. 2013.

viðbrögð við skuldavanda einstaklinga með lán með veði í eign þriðja aðila.

11. mál
[18:00]
Horfa

Margrét Gauja Magnúsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni fyrir greinargóð svör. Ég spurði einnig hvað þessi viljayfirlýsing lífeyrissjóðanna stendur lengi því að ég tel að þetta frumvarp til laga sé vel unnið. Það er mjög gott og þetta er frábært tækifæri. Ég vil svo sannarlega hvetja þá sem í salnum sitja og þá sem eru í svokölluðum meiri hluta að taka þetta föstum tökum og líta á það alvarlegum augum og framkvæma. Ég er ekkert svo viss um að svona tækifæri gefist oft.