143. löggjafarþing — 21. fundur,  13. nóv. 2013.

um fundarstjórn.

[15:39]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill eingöngu taka eitt fram og það er að þessi dagskrárliður er hugsaður, eins og eðlilegt er, til að fjalla um fundarstjórn forseta. Það hefur almennt talað verið túlkað fremur rúmt og eðlilegt að svo sé en hins vegar vill forseti árétta eitt, sem er grundvallaratriði, það að ekki verði hafin framhaldsumræða frá því sem horfið var í þeirri umræðu sem hófst undir liðnum um störf þingsins.