143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2014.

3. mál
[11:28]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Herra forseti. Við erum að greiða atkvæði um breytingar á lögum um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Ég legg til að þessi breytingartillaga verði kölluð aftur því að hér liggur inni frumvarp sem gerir breytingartillöguna marklausa. Það þarf enn frekari breytingar og það þarf að skoða í heild sinni.