143. löggjafarþing — 36. fundur,  13. des. 2013.

fjárlög 2014.

1. mál
[12:40]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Fjárlagafrumvarp hvers árs er helsta stefnuplagg ríkisstjórnarinnar. Með fjárlagafrumvarpi 2014 er því miður boðuð afturhaldssöm atvinnustefna, byggðastefna sem stuðlar að veikingu landsbyggðar og óljós menntastefna. Fjármunir eru veittir til þeirra sem nóg hafa handa á milli frá þeim sem ekki eru aflögufærir.

Virðulegur forseti. Þetta er því miður meginstefið í helsta stefnuplaggi ríkisstjórnarinnar.

Meiri hluti fjárlaganefndar hefur lagt fram breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið og niðurstaðan er að jákvæður heildarjöfnuður næst, ríflega 600 millj. kr. Það er mjög jákvætt að heildarjöfnuður skuli nást á árinu 2014 eins og áætlanir ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur gerðu ráð fyrir þótt gagnrýna megi með hvaða hætti það markmið næst. Frá hruni hefur tekist að loka fjárlagagati sem nam 216 milljörðum kr., ná verðbólgu niður úr 18,6% og hagvexti úr neikvæðri stöðu og þeim áföngum ber vitaskuld að fagna.

Afar mikilvægt er að ríkissjóður komist sem fyrst í þá stöðu að mögulegt sé að hefja niðurgreiðslu skulda. Það skiptir máli fyrir efnahag landsins, fyrir velferðarkerfið og kjör almennings í landinu. Það gerir afnám gjaldeyrishafta auðveldara og skapar skilyrði fyrir minni verðbólgu og lægri fjármagnskostnað. Þetta eru stærstu áskoranirnar sem stjórnvöld standa nú frammi fyrir. Það sem veikir hins vegar stöðuna er að heildarjöfnuður er afar lítill og staðan því mjög brothætt. Þeir liðir sem valda óvissu um hvort áætlanir standist eru einkum breytingar á skilmálum um skuldabréf til Seðlabanka Íslands sem veitt var haustið 2008, hugsanlegur viðbótarkostnaður ef staða Íbúðalánasjóðs reynist verri en gert var ráð fyrir og bankaskattur á þrotabú gömlu bankanna þar sem skuldir þeirra eru skattstofninn. Við skulum skoða þetta aðeins nánar.

Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2014 segir að endurskoða eigi skilmála skuldabréfs sem gefið var út til styrkingar á eiginfjárstöðu Seðlabanka Íslands. Ráðstöfunin á að spara ríkinu 10,7 milljarða kr. í vaxtagjöld. Ljóst er að þessi sparnaður er tilfærsla úr einum vasa ríkissjóðs í annan. Seðlabankinn verður af þessum tekjum og staða hans veikari sem því nemur. Því gæti þessi aðgerð haft áhrif á Seðlabankann og þar með ríkið með öðrum hætti. Breytingar á skilmálunum geta haft margvísleg áhrif á ríkissjóð:

Neikvæð áhrif á eignastöðu Seðlabankans.

Arðgreiðslur til ríkisins frá Seðlabankanum gætu orðið minni.

Sjálfstæði Seðlabankans er ógnað þegar ríkið breytir einhliða skilmálum skuldabréfs.

Verðbólga gæti aukist vegna peningalegrar slökunar.

Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir neinum hliðarverkunum af þessari aðgerð og enginn rökstuðningur færður fyrir þeirri framsetningu. Það veikir óneitanlega þá ályktun eða þá áætlun að 10,7 milljarðar kr. sparist vegna þessara skilmálabreytinga.

Gert er ráð fyrir að veita þurfi Íbúðalánasjóði árlega 4,5 milljarða kr. í framlag frá ríkissjóði vegna slæmrar fjárhagsstöðu hans. Vel gæti verið að þessi útgjöld yrðu meiri.

Frá árinu 2010 hefur þurft að afskrifa í rekstrarreikningi ríkissjóðs um 40 milljarða kr. eiginfjárframlög til sjóðsins. Í ríkisreikningi fyrir árið 2012 er þannig gjaldfærður 7,1 milljarður kr. vegna niðurfærslu á bókfærðum eignarhluta ríkissjóðs í Íbúðalánasjóði. Ríkissjóður þurfti á árinu 2013 að styrkja eiginfjárstöðu Íbúðalánasjóðs um 13 milljarða kr. með nýju stofnfjárframlagi. Óljóst er hvort afskrifa þurfi hluta þess framlags á árinu 2014 eða síðar ef eiginfjárstaðan rýrnar frekar frá því sem þegar er orðið.

Staða Íbúðalánasjóðs er mjög erfið og veruleg óvissa er um rekstrarhæfi hans í núverandi umhverfi vegna lágs vaxtastigs og samkeppni á bankamarkaði í skjóli gjaldeyrishafta. Reiknaður vaxtamunur útlána og lántöku sjóðsins nægir ekki til þess að standa undir rekstrarkostnaði, vanskil eru mikil og uppgreiðsluvandinn er enn til staðar. Í því sambandi þarf einnig að horfa til þess hvað gerist þegar aðgerðir stjórnvalda til að lækka höfuðstól íbúðalána verða að veruleika og sjóðurinn gæti staðið frammi fyrir enn hærri uppgreiðslum útlána en nú er raunin.

Sem dæmi um umfang vandans má nefna að í endurskoðaðri áætlun sjóðsins fyrir árið 2013 frá því í september sl. er áætlað að tap sjóðsins verði um 4,1 milljarður kr. á árinu 2013, en rekstrarafkoma sjóðsins eftir fyrstu sex mánuði ársins er neikvæð um tæplega 3 milljarða kr. Þetta er mun lakari afkoma en samkvæmt áætlun fjárlaga 2013 þar sem áætlað var að afgangur af rekstri sjóðsins yrði um 1,1 milljarður kr.

Verulegar líkur eru á að ríkissjóður verði fyrir enn frekara tapi vegna þessarar stöðu sjóðsins.

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að bankaskattur hækki og nái til fjármálafyrirtækja í slitameðferð. Deilt hefur verið um hvort sú útvíkkun á skattinum standist. Breytingarnar eiga að skila 14,2 milljörðum kr. árið 2014 og þar af 11,3 vegna fyrirtækja í slitameðferð. Ofan á það eiga líklega eftir að bætast rúmlega 20 milljarðar kr. vegna frekari hækkana til að standa straum af kostnaði við skuldaleiðréttingar, en frekari umræða um bankaskattinn bíður 3. umr. fjárlaga.

Virðulegur forseti. Eitt af fyrstu verkum nýrrar ríkisstjórnar var að lækka veiðigjaldið umtalsvert þannig að samkvæmt áætlunum lækka tekjur af því um 6,4 milljarða kr. á árinu 2014. Einnig tóku stjórnvöld ákvörðun um það á sumarþinginu að halda virðisaukaskatti af hótelum og gistihúsum í 7% þrepi með matvælum. Tekjutap vegna þessara ákvarðana stjórnvalda miðað við áætlanir sem gerðar hafa verið eru 7,9 milljarðar kr. Líklegt er að meðal ástæðna gífurlegrar fjölgunar ferðamanna hingað til lands sé veik króna og að á því hagnist hótel og gististaðir. Sjávarútvegurinn hagnaðist mjög á falli krónunnar á meðan almenningur og ríkissjóður tapaði. Við slíkar aðstæður og í ljósi stöðu ríkissjóðs leyfir 1. minni hluti fjárlaganefndar sér að fullyrða að lækkun þessara tekna hafi verið afar óskynsamleg og hafi haft umtalsverð áhrif á með hvaða hætti skorin er niður þjónusta sem ríkið veitir þeim sem helst þurfa á henni að halda, á opinberar fjárfestingar og vaxtarsprota atvinnulífsins.

Virkjun hugvits, nýsköpun og aukin fjölbreytni í atvinnulífi er forsenda þeirrar auknu verðmætasköpunar sem Íslendingar þurfa til að greiða niður erlendar skuldir þjóðarbúsins, bæta lífskjör og byggja upp velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfi í fremstu röð. Einhver dapurlegustu tíðindin sem felast í fyrsta fjárlagafrumvarpi nýrrar ríkisstjórnar og tengdum ráðstöfunum er alger skortur á framtíðarsýn í atvinnumálum eða áætlun um hvernig styðja megi við fjölbreyttara atvinnulíf. Samt er hér um að ræða lykilinn að því að Ísland sé samkeppnishæft við önnur lönd um unga fólkið okkar og að byggðir fái dafnað um land allt.

Þótt auðlindagreinarnar séu okkur afar mikilvægar um fyrirsjáanlega framtíð eru vexti þeirra sett náttúruleg mörk. Hugvitinu sem auðlind eru engin slík takmörk sett eins og við höfum þrátt fyrir allt séð fjölda dæma um frá síðustu árum þar sem framsækin íslensk fyrirtæki hafa orðið til, gjarnan sprottin úr nánum tengslum við þær undirstöðugreinar sem fyrir eru. Vegna þessa var lögð sérstök áhersla á það í tíð síðustu ríkisstjórnar að hlífa stoðkerfi atvinnulífsins og samkeppnissjóðunum eins og kostur var og bæta í hvar og hvenær sem færi gafst. Nú fer jafn lítið fyrir sýn á þróun íslensks atvinnulífs og sýninni á peningamál þjóðarinnar eða hvernig íslenskum fyrirtækjum og heimilum verði tryggður stöðugri gjaldmiðill og viðráðanleg vaxtakjör.

Stóra hættan er sú að sá niðurskurður og það afturhald í atvinnumálum sem fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar boðar valdi frekari samdrætti í verðmætasköpun og auki þannig vanda ríkissjóðs til lengri tíma litið vegna samdráttar í skatttekjum. Við slíku hafa m.a. Samtök iðnaðarins varað.

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum boða íslensku atvinnulífi niðurskurð á hinum afar mikilvægu samkeppnissjóðum, Tækniþróunarsjóði og Rannsóknasjóði, skertum stuðningi við rannsóknir og þróun í atvinnulífi, samdrætti í stuðningi við vaxtarbroddinn skapandi greinar, skerðingu sjóðs til fjárfestinga í uppbyggingu fjölsóttra ferðamannastaða, brotthvarf sóknaráætlana landshluta og þeirrar merku nýjungar að færa ákvarðanir um útdeilingu fjármagns til verkefna í hendur heimamanna í hverjum landshluta, afnám fjárfestingarsjóðs til að efla fjárfestingar í fyrirtækjum á sviði umhverfislausna og afturköllun átaks um markaðssókn til að efla beinar erlendar fjárfestingar á því sviði.

Stuðningur við rannsóknir og þróun í starfandi fyrirtækjum sem tekinn var upp árið 2009 í kjölfar hruns fjármálakerfisins sem liður í endurreisn atvinnulífsins hefur reynst fjölmörgum fyrirtækjum afar mikilvægur. Nýsköpun og þróun í starfandi fyrirtækjum eru líklega skjótvirkasta leiðin til að fjölga störfum og auka verðmætasköpun. Slíkur stuðningur er líka nauðsynlegur til að bæta samkeppnisstöðu Íslands í hugverkageiranum. Nú á að skera þennan stuðning niður og grafa þannig undan starfsumhverfi framsæknustu fyrirtækja okkar.

Í nýrri greinargerð draga Samtök iðnaðarins upp með skýrum hætti hve miklum verðmætum samkeppnissjóðir atvinnulífsins hafa skilað. Arðurinn af fjárfestingu ríkisins í nýsköpun í gegnum Tækniþróunarsjóð einan mælist í tugum milljarða samkvæmt mati Samtaka iðnaðarins. Samdráttur í þeirri fjárfestingu dregur ekki aðeins saman hinn beina arð samfélagsins heldur versnar samkeppnisstaða Íslands gagnvart okkar vel menntaða unga fólki sem sækist eftir spennandi framtíðarstörfum. Sama á við um samdrátt í stuðningi við skapandi greinar sem hafa samkvæmt úttektum verið að skapa fjölda eftirsóttra starfa og vaxandi útflutningsverðmæti.

Virðulegi forseti. Stefna nýrrar ríkisstjórnar í byggðamálum birtist með skýrum hætti í fjárlagafrumvarpinu og þeim breytingartillögum sem meiri hluti fjárlaganefndar hefur flutt. Ég vil nefna hér nokkur dæmi.

Á fundi ríkisstjórnarinnar sem haldinn var á Ísafirði 5. apríl 2011 var samþykkt að unnið yrði að því með Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum að leita leiða til að lækka og jafna húshitunarkostnað. Í kjölfarið var skipaður starfshópur sem gerði tillögu um að grundvallarbreyting verði gerð á niðurgreiðslukerfinu þannig að flutningur og dreifing á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis verði niðurgreidd að fullu. Kerfið verði sjálfvirkt þar sem öllum breytingum á verði á raforkudreifingum yrði mætt með sjálfvirkum hætti án þess að sérstök ákvörðun þyrfti að liggja þar að baki. Einnig gerði starfshópurinn tillögu að breyttri fjármögnun niðurgreiðslna. Tillaga hópsins er að jöfnunargjald verði sett á hverja framleidda kílóvattstund sem næmi þeim kostnaði sem nauðsynlegur er á hverjum tíma til að niðurgreiða að fullu flutning og dreifingu raforku til upphitunar íbúðarhúsnæðis. Sá hái húshitunarkostnaður sem um 10% landsmanna býr við hefur stuðlað að búseturöskun og veikt samfélögin. Þessi þungi kostnaðarliður hefur áhrif á lífskjör og val til búsetu á þessum svæðum. Á 141. löggjafarþingi var lagt fram frumvarp samhljóða tillögum starfshópsins með þverpólitískum stuðningi.

Með breytingartillögum meiri hluta fjárlaganefndar er vikið frá hinni pólitísku sátt. Hækkun er lögð til á lið um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku um 304 millj. kr. Gert ráð fyrir breytingum á lögum nr. 98/2004 þar sem tekið yrði upp sérstakt jöfnunargjald á þá raforku sem fer um dreifikerfi dreifiveitna til að standa undir fullri jöfnun kostnaðar við dreifingu á raforku til almennra notenda. Þar sem álver og önnur stóriðja fá sína orku beint frá Landsneti, en ekki í gegnum dreifiveiturnar, munu þau ekki greiða þetta sérstaka jöfnunargjald. Stjórnvöld leggja því til aukinn kostnað á heimilin í landinu að því er virðist til að álver og stóriðja sleppi við að greiða gjaldið.

Annað sláandi dæmi um forgangsröðun stjórnvalda í byggðamálum er að meiri hluti fjárlaganefndar lagði það til í fjáraukalögum að lögbundnar markaðar tekjur fjarskiptasjóðs rynnu ekki til sjóðsins. Um er að ræða 195 millj. kr. Þar með lenda verkefni sjóðsins í uppnámi og hinar dreifðu byggðir þurfa enn að bíða eftir bættum búsetuskilyrðum. Með lögum nr. 179/2011 samþykkti Alþingi samhljóða, þverpólítískt, að tekjur sjóðsins væru m.a. sértekjur af tíðnigjöldum sem til koma vegna uppboðs Póst- og fjarskiptastofnunar, eins og lög um fjarskipti segja til um. Hugmynd Alþingis þá með styrkingu sjóðsins var að stuðla að því að fjarskiptalegum skuggasvæðum landsins væri fækkað, m.a. vegna neyðar- og öryggissjónarmiða, en einnig að stuðla að enn frekari ljósleiðaravæðingu á torveldum svæðum. Sjóðurinn gerði ráð fyrir að nýta þessar tekjur til verkefna á árinu 2014. Ekki er gert ráð fyrir sértekjum á árinu 2014 enda ekkert tíðniútboð fram undan.

Ljóst er því að geta sjóðsins til að sinna aðkallandi verkefnum mun verða lítil sem engin á árinu 2014, en samkvæmt þessu þarf sjóðurinn væntanlega að vinna á óverulegum uppsöfnuðum heimildum. Þá ber að minna á að fyrirliggjandi eru samningar um styrki vegna GSM-sendistaða við þjóðveg landsins og fjölsótta ferðamannastaði en auk þess stærsti samningurinn sem tengist háhraðanettengingum til þeirra landsmanna sem fjarskiptafyrirtækin hafa ekki getað sinnt, þar á meðal gervihnattasendingar til um 70 lögbýla.

Virðulegi forseti. Þessi tvö dæmi sýna svo greinilega áherslur nýrra stjórnvalda í byggðamálum og frávik þeirra í þeim tillögum sem hér eru bornar fram og einnig í þeim tillögum sem eru í fjárlagafrumvarpinu, frávik frá pólitískri sátt sem myndast hafði aðeins fyrir örfáum mánuðum eða árum. (Forseti hringir.)

(Forseti (ValG): Fyrirhugað er að gera hlé til að menn geti matast og haldið þannig fullri orku. Hentar það hv. þingmanni að gera hlé núna?)

Já, það hentar ágætlega þó að frekar hefði ég nú kosið að fá að klára ræðu mínu fyrir mat.

(Forseti (ValG): Þá er þingfundi frestað til klukkan tvö og ræðu hv. þm. Oddnýjar Harðardóttur frestað til klukkan tvö.)