143. löggjafarþing — 64. fundur,  18. feb. 2014.

varamenn taka þingsæti.

[13:32]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 8. þm. Reykv. n., Árna Þór Sigurðssyni, um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiði Ríkharðsdóttur, um að 7. þm. Reykv. s., Guðlaugur Þór Þórðarson, geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni.

Í gær tóku því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þá Steinunn Þóra Árnadóttir og Sigríður Á. Andersen og eru þær báðar boðnar velkomnar til starfa.