áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Ég kem aðallega hingað til að sýna hv. þingmanni samstöðu og taka undir með henni og lýsa mig sammála henni. Það er ekki boðlegt að hv. þingmanni sé gert að halda ræðu sína við þessar aðstæður. Ég tek út fyrir það að forseti skuli standa svona að áframhaldi þessa fundar. Það er afar óskynsamlegt.
Ég kem hingað í öðru lagi til að lýsa megnustu skömm minni á hegðun hv. þm. Jóns Gunnarssonar í þingsalnum undir ræðu þingmannsins. Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst það skammarlegt að standa þannig að verki eins og hv. þingmaður gerði undir ræðu þingmannsins (Gripið fram í.) og við erum mörg vitni að í salnum.
Í þriðja lagi væri gaman að heyra aðeins álit hv. þingmanns, þótt hún hafi lítinn tíma, en ég hef verið að halda því fram í umræðunni að þetta mál sé í reynd miklu stærra en það þó er í breytingartillögunni vegna þess að í skilningi umhverfismálanna væri það svo miklu verra mál en nokkurn gæti órað fyrir vegna þeirrar U-beygju (Forseti hringir.) sem það væri í allri nálgun á þessu sviði ef rammaáætlun væri eyðilögð og við rifin 10, 20, 30 ár aftur í tímann í þessum efnum.