lagasetning á kjaradeilur.
Herra forseti. Það er mjög einfalt að verða við óskum hæstv. utanríkisráðherra um að komast aftur í stjórnarandstöðu, það er að rjúfa þing og boða til kosninga. (Gripið fram í.) Þá er nokkuð ljóst að utanríkisráðherra verður í stjórnarandstöðu ef hann nær kjöri.
Ég er sammála því að ástandið á heilbrigðiskerfinu er að sjálfsögðu alvarlegra en ástandið sem skapaðist út af yfirvinnubanni Herjólfs. Þannig hóf þessi ríkisstjórn göngu sína í sambandi við stjórnarskrárvarinn samningsrétt og verkfallsrétt launamanna. (Gripið fram í: Já.) Sett voru sett lög á yfirvinnubann Herjólfs. Yfirvinnubann sex starfsmanna á Herjólfi. Hér leggur hún nú til í fjórða sinn að lög verði sett á kjaradeilur og stjórnarskrárvarinn samnings- og verkfallsréttur tekinn af mönnum. Það er alltaf grafalvarlegt mál. Það er rétt. Það var þungbært að þurfa að leggja það til gagnvart flugvirkjum 2010 í kjölfar eldgoss og í miðju svartnætti efnahagshrunsins. Það mál fékk svo að vísu farsælan endi. Það var eina dæmið á fjórum og hálfum árum um slíkt, en þessi ríkisstjórn hefur rétt náð að sitja hálft kjörtímabilið þegar hún leggur það til hér í fjórða sinn (Forseti hringir.) að svipta menn stjórnarskrárvörðum samnings- og verkfallsrétti ótímabundið. (Forseti hringir.) Ótímabundið. Það verður einhver þriggja manna hópur frá Hæstarétti sem ákveður hversu lengi (Forseti hringir.) þessi réttindi verða höfð af opinberum starfsmönnum.