144. löggjafarþing — 137. fundur,  25. júní 2015.

fyrningarfrestur í gjaldþrotaskiptum.

[11:18]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Virðulegi forseti. Það er svo sem engu sérstöku við þetta að bæta öðru en því að ég held að það sé ágætt að þessi spurning kom fram svo að hægt hafi verið að svara henni skilmerkilega og menn séu þá ekkert í vafa um hvað gildir í þessum efnum. Stundum þegar við erum að breyta geta menn ruglast svolítið út af þessum bráðabirgðaákvæðum, eins og við vitum. Þetta er alveg skýrt og liggur skýrt fyrir af okkar hálfu.