146. löggjafarþing — 30. fundur,  22. feb. 2017.

þátttaka stjórnarflokka í sérstökum umræðum.

[15:19]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Nú bauð ég bara upp á það að fólk gæti komið hingað upp og svarað þeim spurningum sem ég lagði fram í gær. En frá því að ég gerði það og þangað til ég bað um orðið hefur enginn úr þeim flokkum sem um er rætt kvatt sér hljóðs. Mér finnst það eilítið undarlegt og fólk gæti a.m.k. bara nýtt sér tækifærið núna til að gefa þær ástæður sem það hafði til þess að mæta ekki í umræðuna í gær. Þetta er ekkert rosalega flókið. Og málefnaþurrð?