146. löggjafarþing — 55. fundur,  5. apr. 2017.

fjármálaáætlun 2018--2022.

402. mál
[17:37]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir gott og greinargott svar. Mig langar örstutt að bæta við: Það svigrúm sem verður þá mögulega til, ef hæstv. ráðherra hefur svar á reiðum höndum, yrði það á þessu fimm ára tímabili? Erum við að tala um aukinn afgang þá 2019–20 eða síðar? Svo ég átti mig á tölunum.