148. löggjafarþing — 65. fundur,  31. maí 2018.

lengd þingfundar.

[15:56]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Nú veit ég fyrir víst að hæstv. forseti er skynsamur maður. Þeir sem þekkja betur til hans pólitíska ferils á Alþingi en ég segja jafnvel að hann sé slyngur og klókur stjórnmálamaður. Nú beini ég því í vinsemd og með virðingu til hæstv. forseta að hann reyni að finna hjá sér þessa eiginleika alla og reyni að greiða úr þessu máli þannig að sómi sé að. Ég veit alveg að hann getur það ef hann vill það.