149. löggjafarþing — 28. fundur,  7. nóv. 2018.

störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Páll Magnússon (S):

Hæstv. forseti. Það bar til í síðustu eða þarsíðustu viku að einn hv. þingmaður, Björn Leví Gunnarsson, þjófkenndi annan hv. þingmann, Ásmund Friðriksson. Það er ekkert matskennt hjá mér að þessi þjófkenning hafi farið fram, vegna þess að fyrrgreindi þingmaðurinn tilkynnti það sérstaklega að hann hefði ekki þjófkennt hann áður en gerði það nú.

Ég ætla ekki að fjölyrða hér um það hvað þessi ummæli eru ósmekkleg, óheiðarleg, ómerkileg og svívirðileg. Þetta eru tilhæfulaus brigslyrði sem einn hv. þingmaður lét falla um annan.

Ég vil hins vegar beina því til forseta og forystu þingsins að fundinn verði einhver endir á þetta mál. Hér koma slag í slag, einn á eftir öðrum, þingmenn Pírata með þessar ásakanir með nokkurra mánaða millibili. Nú á forseti og forysta þingsins að mínu viti þrjá kosti í þessu: Það er að vísa þessu frá sem tilhæfulausum aðdróttunum og víta þessi ummæli með einhverjum hætti. Forysta þingsins á líka þann kostinn að rannsaka málið og kanna hvort hægt sé að segja að hér hafi verið farið á svig við þær reglur sem þingið fer eftir. Eða ef þingforystan telur rökstuddan grun um að hér hafi peningum verið stolið frá Alþingi getur forysta þingsins væntanlega eftir atvikum kært það til lögreglu.

Hins vegar er ekki hægt að búa við það að þessi brigslyrði eins þingmanns eða heils þingflokks í garð eins þingmanns gangi hér slag eftir slag með einhverra missera millibili.