150. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2019.

staða ríkislögreglustjóra.

[15:23]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ríkislögreglustjóri nýtur trausts eins og aðrir embættismenn og forstjórar og stjórnendur undirstofnana minna. En það segir þó ekki að málið sé ekki alvarlegt. Er óásættanlegt ástand innan og milli þessara aðila innan lögreglunnar? Já, og ég greindi frá því í dag á fundi mínum við hann. Öll þau mál sem hv. þingmaður nefnir sérstaklega eru til skoðunar og mun ég taka þau til ítarlegrar skoðunar og fylgja þeim eftir eftir fund okkar sem var í morgun.