150. löggjafarþing — 45. fundur,  13. des. 2019.

staðfesting ríkisreiknings 2018.

431. mál
[10:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta er allt hárrétt sem hv. þingmaður rakti. Tíminn var knappur, en að venju höfðum við fengið á fund nefndarinnar ríkisendurskoðanda, Fjársýslu ríkisins og ráðuneytið. Við héldum okkur við þá venju og fengum þá aðila á fund nefndarinnar, eins og kemur reyndar fram í nefndaráliti meiri hlutans. Við fengum sérstaka umsögn ríkisendurskoðanda um frumvarpið. Við héldum okkur við þá venju og töldum það duga.