151. löggjafarþing — 103. fundur, 31. maí 2021.
njósnir samherja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnirnar. Ég vissi bara ekkert um þetta mál fyrr en ráðuneytisstjórinn sagði mér frá því fyrir nokkrum dögum að haft hefði verið samband við hann, að ég held frá Kjarnanum. Í kjölfarið sendi ráðuneytisstjórinn yfirlýsingu, sem ég hygg að hv. þingmaður hafi verið að vitna í. Að öðru leyti veit ég ekkert um þetta mál.