152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:31]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Frumvarp til fjáraukalaga var lagt fram á Alþingi þann 13. desember síðastliðinn. Frumvarpið gekk til fjárlaganefndar þann 15. desember og því gafst óvenjustuttur tími til umfjöllunar um efni þess í fjárlaganefnd. Þó að stuttur tími sé til stefnu er engu að síður hægt að gera mikilvægar breytingar á frumvarpinu til hins betra. Eins og fram kemur í frumvarpinu er afkoma ríkissjóðs talsvert betri en gert var ráð fyrir við setningu fjárlaga fyrir ári. Skýrist það m.a. af hröðum efnahagsbata og lækkandi atvinnuleysi. Tekjur ríkissjóðs eru 63 milljörðum kr. hærri en fjárlög ársins gerðu ráð fyrir. Því er til staðar svigrúm til úrbóta handa samfélagshópum sem ekki hafa fengið viðeigandi stuðning stjórnvalda í gegnum heimsfaraldurinn.

Öryrkjar og ellilífeyrisþegar hafa orðið fyrir miklum neikvæðum áhrifum, bæði andlegum og félagslegum. Margir hafa þurft að einangra sig vegna undirliggjandi sjúkdóma og vegna sóttvarnaráðstafana hefur ýmis þjónusta raskast. Þá hefur verðbólga aukist til muna undanfarið og bitnar það verst á þeim sem hafa lágar tekjur. Flokkur fólksins fagnar því að samstaða hafi náðst um að greiða öryrkjum jólabónus, 53.100 kr. skatta- og skerðingarlaust. Marga munar svo sannarlega um þá viðbót. Ríkisstjórnin var svo gott sem búin að þvertaka fyrir að greiða uppbótina en eftir mikla baráttu Flokks fólksins og flokka í stjórnarandstöðu og eftir ákall frá þúsundum öryrkja um hjálp er sigur í höfn.

En ekki er nóg að tryggja öryrkjum eingreiðslu fyrir jólin. Fjöldi ellilífeyrisþega lifir undir fátæktarmörkum og á erfitt með að ná endum saman, sérstaklega um jólin þegar kaupa þarf gjafir og jólamat. Við í Flokki fólksins leggjum því fram tillögu til breytinga á frumvarpinu þess efnis að sama viðbót, 53.100 kr., verði greidd til þess hóps ellilífeyrisþega sem minnstar tekjur hefur. Við leggjum til breytingu á útgjaldalið frumvarpsins þess efnis að þrjár neðstu tekjutíundir ellilífeyrisþega fái eingreiðslu fyrir sömu fjárhæð. Heildarfjárhæð þeirrar tillögu er um 610 millj. kr. Og hvernig er hún fengin? Ellilífeyrisþegum er raðað eftir tekjum í tíu jafn fjölmenna hópa. Hver hópur er 3.840 einstaklingar, svo ég sé nákvæmur. Ef þrír af þessum hópum fengju 53.100 kr. skatta- og skerðingarlaust myndi það gera nákvæmlega 611,7 millj. kr. Í fjárlögum og fjármálum ríkisins er það ekki há fjárhæð. 53.100 kr. er hins vegar mjög há fjárhæð fyrir þrjár neðstu tekjutíundir ellilífeyrisþega, fjárhæð sem skiptir sköpum á þessum árstíma. Þetta framlag, ásamt jólabónus öryrkja, verði það samþykkt á Alþingi, myndi sýna ótvíræðan vilja Alþingis til að gera úrbætur fyrir þá sem bágast standa í samfélaginu og vilja til að takast á við fátækt á Íslandi, einu allra ríkasta samfélagi heims, landi sem er í sjötta sæti hjá OECD yfir ríkustu þjóðir heims.

Það er svartur blettur á íslensku samfélagi að umræða um fátækt sé jafn algeng og raun ber vitni, svartur blettur sem hægt er að afmá, sé vilji fyrir hendi á Alþingi. Sá vilji þarf að koma skýrt fram á Alþingi og helst nú fyrir jól og þá með samþykkt þessarar breytingartillögu. Hæstv. félagsmálaráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnum, þegar hann var spurður um afstöðu sína til þessarar tillögu, að hún myndi fá þinglega meðferð. Hæstv. ráðherra sló hana ekki út af borðinu þannig að enn er von. Sú von er í höndum ríkisstjórnarinnar og þingmeirihlutans. Við skulum vona að vonin rætist líkt og í tilviki öryrkja með tillögu fjárlaganefndar.

Flokkur fólksins leggur einnig til að hjálparsamtök sem annast matargjafir, matarúthlutanir, fái styrk úr ríkissjóði. Heildarfjárhæð styrkjanna verði 100 millj. kr. Þessi samtök sinna mikilvægu hlutverki og aðstoða fátækar fjölskyldur í sinni sárustu neyð. Eftirspurnin er alltaf mest um jólin og samtökin vilja gjarnan gefa meira en þau geta. Stuðningur við hjálparsamtök sem eru með matarúthlutanir er stuðningur sem skilar sér til þeirra fjölskyldna sem þurfa mest á hjálp að halda í samfélaginu. Hjálpum öllum að halda gleðileg jól.