152. löggjafarþing — 16. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:19]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil bara taka undir þau orð sem hér hafa komið fram um samstöðuna um akkúrat þetta mál og ítreka að við gerum okkur öll í þessum sal grein fyrir mikilvægi geðheilbrigðis og þess sem við þurfum að vinna að í þeim málum. Þar hefur ýmislegt verið gert á undanförnum árum, sér í lagi í ljósi ástandsins, og nú erum við að halda því áfram. Ég fagna þessari samstöðu og samtalinu um þetta mál.