152. löggjafarþing — 16. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[19:23]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Það klúðraðist algerlega að selja Íslandsbanka, það var bókstaflega verið að gefa fyrstu bréfin, þannig að nú erum við alla vega komin á rétt verð hvað það varðar og salan fram undan á því er svo sem ekkert mikið í okkar höndum. En það er ekki séns að ég treysti þessari ríkisstjórn eða þessum fjármálaráðherra fyrir því að fara að selja nýjan banka.