152. löggjafarþing — 18. fundur, 28. des. 2021.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
3. mál
Frú forseti. Mig langar, með leyfi forseta, að vitna í nokkuð sem var sagt við afgreiðslu fjárlaga 1944: „Ég vil ekki beygja mig fyrir þeim meiri hluta, sem fellir sjúkrahús, en byggir kirkjur, og segi því nei.“