Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 6. fundur,  20. sept. 2022.

störf þingsins.

[14:04]
Horfa

Brynja Dan Gunnarsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Ég gæti staðið hér og eytt þeim tveimur mínútum sem ég hef í að horfa hér yfir og meðtaka það að ég fái tækifæri til þess að standa hér sem ein af 63 þingmönnum landsins okkar í dag, þakklát og auðmjúk fyrir tækifærið og það traust sem mér er sýnt, stelpunni sem kom frá einni eyju til annarrar, og ég er handviss um að það var engin tilviljun að ég kom hingað. Við erum nefnilega í grunninn öll eins, öll með sömu þarfir. Ástæðan fyrir veru minni hér er sú að ég vil láta gott af mér leiða. Það er svo magnað að fá að taka þátt, fá að nýta krafta sína í þágu betra samfélags, eins og við öll sem sitjum hér erum að gera.

Ég var spurð á dögunum hvað heillaði mig við pólitíkina og það að stíga inn á opinberan vettvang. Í fyrstu er það kannski ekkert rosalega heillandi að fólki finnist það eiga þig, orðræðan á miðlum landsins, að vera partur af ljótum og særandi umræðum. En það fallega er að fá að hafa áhrif, að fá tækifæri til að vera rödd mismunandi málefna og vera partur af breytingum. Við munum aldrei öll vera sammála en ef við sameinumst og finnum leiðir sem ýta okkur frá þrasi og rifrildi, förum í boltann en ekki manninn og höfum samvinnuhugsjón að leiðarljósi held ég að markmiðið okkar sé það sama, að búa fólkinu í landinu okkar eins gott líf og hægt er.

Hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, er vissulega ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að stíga inn á pólitískt svið. Okkar skoðanir liggja samhliða þegar kemur að börnunum okkar, að búa þeim eins öruggt samfélag og hægt er. Ég lít svo á að öll börn séu okkar börn og okkur beri að vernda þau, grípa þau og styðja. Ég nefni einnig allar þessar flottu ungu konur sem við eigum í pólitíkinni en það eru forréttindi að eiga þær sem fyrirmyndir og hvatningu fyrir okkur hinar. Það gefur okkur kjark, dug og þor.

Hér hafa verið brotin alls konar blöð og glerþök í sögunni og ég vona að við höldum áfram að ryðja brautir fyrir komandi kynslóðir. Þótt alltaf megi gera betur þá er ég ákaflega stolt af því að vera Íslendingur og af öllu því sem við höfum afrekað. Spurningin er bara hvernig við ætlum að bretta upp ermar og halda áfram. Ég er hér því að ég vil gera meira en að sitja heima og kvarta yfir því sem betur má fara. Ef við ætlum að breyta þurfum við að leiða með fordæmi. (Forseti hringir.) Ég vil vera partur af því fordæmi, partur af breytingunum.