Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2022.

uppbygging geðdeilda.

98. mál
[13:00]
Horfa

Flm. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um uppbyggingu geðdeilda. Tillagan er borin uppi af þingflokki Samfylkingarinnar. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að hefja vinnu við að tryggja bætta aðstöðu fyrir geðsvið Landspítala og geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri. Skipaður verði starfshópur fagfólks og hagsmunaaðila, þ.m.t. notenda og aðstandenda þeirra, sem annist frumathugun, þarfagreiningu og húsrýmisáætlun vegna verksins, beri saman ólíka kosti og leggi fram tillögur að staðsetningu og stærð. Tryggt verði að nýr húsakostur mæti kröfum nútímans um mannúðlega, framsækna og fjölbreytta geðheilbrigðisþjónustu, þ.m.t. lyfjalausa geðdeild.“

Þá er einnig lagt til að starfshópurinn leggi greinargerð sína og tillögur fyrir ráðherra eigi síðar en 1. júlí 2023.

Frú forseti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi tillaga er lögð hér fram. Hún var einnig lögð fram á 152. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Þá svipar þessari tillögu til þeirrar sem lögð var fram á 151. löggjafarþingi en hefur þó verið útvíkkuð og snertir einnig starfsemi geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri og mun ég gera nánari grein fyrir því hér á eftir. Með tillögunni er lagt til að ráðist verði í markvissan undirbúning að uppbyggingu húsnæðis fyrir geðheilbrigðisþjónustu Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri, en húsakostur beggja sviða er ófullnægjandi. Brýnt er að samhliða uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut verði geðsviði spítalans fundinn fullnægjandi húsakostur sem tekur mið af þörfum fólks sem glímir við geðrænar áskoranir sem og að geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri, sem er eina sérhæfða geðdeildin utan höfuðborgarsvæðisins, fái fullnægjandi og nútímalegan húsakost.

Frú forseti. Starfsemi geðsviðs Landspítala fer einkum fram í gömlu byggingunni við Hringbraut og gömlu byggingunni á Kleppi við Elliðaárvog. Húsnæðið á Hringbraut er byggt á áttunda áratugnum eftir byggingarreglugerðum þess tíma en starfsemin á Kleppsspítala hófst hins vegar árið 1907. Landssamtökin Geðhjálp hafa bent á að húsnæðið við Hringbraut sé um margt óhentugt fyrir starfsemina, þannig sé til að mynda ekki gert ráð fyrir útisvæðum fyrir þá sem eru í vistun á lokuðum deildum og í gæslu vegna veikinda sinna. Húsnæði Klepps er úr sér gengið og hugmyndafræðin að baki aðstöðunni gamaldags og á skjön við nútímakröfur um mannúðlega meðferð sjúklinga sem glíma við geðrænar áskoranir.

Í úttekt landlæknis á geðsviði Landspítala frá 2013, nærri tíu ára gamalli úttekt, kemur fram að ástand húsnæðis sé víða ábótavant og það standist ekki kröfur nútímans. Húsbúnaður sé úr sér genginn, skortur sé á viðtalsherbergjum og óæskilegt fyrir þennan viðkvæma sjúklingahóp hve mörg legurýmanna séu í tvíbýli — í tvíbýli árið 2022. Þá telji starfsmenn niðurlægjandi fyrir sig og sjúklingana að vinna og dvelja í niðurníddu umhverfi. Landlæknir kemst að þeirri niðurstöðu í úttektinni að gera þurfi nauðsynlegar úrbætur á húsnæði og húsbúnaði geðsviðs sem fyrst. Síðan hefur lítið breyst í þessum efnum og sat húsakostur geðsviða eftir í þeirri húsnæðisuppbyggingu sem stendur yfir á Landspítala. Geðdeildin á enn þá að vera í gömlu húsnæði sem svo sannarlega er barn síns tíma.

Nefnd Evrópuráðsins um varnir gegn pyndingum, svokölluð CPT-nefnd, hefur sett tiltekin viðmið um hvað þurfi að hafa í huga þegar veitt er meðferð á lokuðum geðdeildum. Þar er lögð áhersla á að öruggt en jafn framt hlýlegt umhverfi sé einn nauðsynlegra þátta til að mæta grunnþörfum við umönnun sjúklinga. Umhverfi sem er bjart, rúmgott og hreinlegt hefur almennt jákvæð áhrif á líðan og hegðun sjúklinga. Þetta er ekki aðeins mikilvægt fyrir sjúklingana heldur einnig fyrir starfsfólkið. Að sama skapi er mikilvægt að einstaklingar sem dveljast á lokuðum deildum geðheilbrigðisstofnana hafi tök á að njóta útiveru með einhverjum hætti, a.m.k. í eina klukkustund á dag ef ástand þeirra leyfir. Hafa verður í huga að þegar einstaklingar hafa verið sviptir frelsi sínu fyrir tilstilli hins opinbera og hafa ekki sjálfir tök eða forræði á að taka ákvarðanir um þessi atriði er varða nærumhverfi þeirra og grunnþarfir, er afar mikilvægt að gætt sé að þessum atriðum, að þessir einstaklingar eigi kost á útiveru, að draga að sér ferskt loft.

Hvað varðar húsnæði geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri er rétt að vísa til úttektar embættis landlæknis frá því í desember 2012, þ.e. tíu ára gamla úttekt, þar sem m.a. segir að aðstaðan á legudeild geðdeildar sé óviðunandi og óforsvaranleg til lengri tíma litið. Í ársskýrslu Sjúkrahússins fyrir árið 2020 segir að legudeild geðdeildar sé enn í því húsnæði sem tekið var í notkun 1986 og að þrátt fyrir vissar endurbætur sem gerðar hafi verið á húsnæðinu hin síðari ár standist húsnæði legudeildar ekki nútímakröfur. Ljóst má því vera að aðgerða er þörf.

Líkt og fram hefur komið var tillaga þessi lögð fram á 152. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Velferðarnefnd Alþingis óskaði þá eftir umsögnum um tillöguna og bárust þrjár umsagnir, frá embætti landlæknis, Geðhjálp og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Í umsögn embættis landlæknis kom fram að landlæknir styddi tillöguna og teldi hana mikilvægt umbótaskref í geðheilbrigðismálum. Um áratugur væri liðinn síðan embættið gerði úttekt á geðsviði Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem fram kom m.a. að aðstöðu til geðheilbrigðisþjónustu innan þessara stofnana væri ábótavant og hún stæðist ekki kröfur sem gerðar eru til starfsemi af þessu tagi. Löngu tímabært væri að ráðast í þá vinnu sem lögð væri til í þingsályktunartillögunni. Og ítrekað er: Embætti landlæknis styður eindregið þessa tillögu. Í umsögn Geðhjálpar kom einnig fram stuðningur við tillöguna og þar kom fram að ein helsta hindrun innan heilbrigðiskerfisins þegar kæmi að geðheilsu væri að húsnæði geðdeilda væri komið til ára sinna, það stæðist ekki kröfur nútímans og væri beinlínis bataletjandi. Sjúkrahúsið á Akureyri skilaði einnig umsögn þar sem fram kom stuðningur við tillöguna.

Frú forseti. Víða á Norðurlöndum hafa verið stigin mikilvæg skref á undanförnum árum í átt að mannúðlegra og heilnæmara umhverfi fyrir sjúklinga sem glíma við geðrænar áskoranir. Í því samhengi má nefna geðsjúkrahúsið í Vejle á Jótlandi sem var opnað árið 2017 í nýrri byggingu þar sem öll innanhússhönnun tekur mið af viðurkenndum áhrifum umhverfis og húsakosts á geðheilsu. Einnig er vert að skoða þá uppbyggingu sem nú á sér stað við Bispebjerg-spítalann í Kaupmannahöfn og réttargeðdeildina á Sct. Hans í Hróarskeldu. Löngu er orðið tímabært að stigin verði sams konar skref á Íslandi og starfsemi geðsviðs Landspítala og geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri fundinn húsakostur þar sem er bjart, vítt til veggja og hátt til lofts og í umhverfi sem býður upp á útiveru og hreyfingu fyrir þá sem þess geta notið. Lagt er til að heilbrigðisráðherra skipi starfshóp fagfólks og hagsmunaaðila, þ.m.t. notenda og aðstandenda þeirra, sem er gríðarlega mikilvægt og má ekki gleyma að leita til þeirra, og að þessi hópur vinni frumathugun, þarfagreiningu og húsrýmisáætlun vegna verksins og skili af sér greinargerð um mitt næsta ár.

Frú forseti. Ég hef nú mælt fyrir þessari þingsályktunartillögu og að þessu sinni, í þriðja sinn, geri ég það í minningu Hrafns Jökulssonar, einarðs baráttumanns fyrir þessu máli. Hann hefur hvatt mig áfram síðustu ár að hætta ekki að berjast en Hrafn lést í síðasta mánuði langt fyrir aldur fram. Ég vil nota tækifærið hér í dag til að þakka Hrafni af öllu hjarta fyrir baráttu hans fyrir bættri þjónustu og bættum aðbúnaði fyrir fólk sem glímir við geðrænar áskoranir. Megi þessi löngu tímabæra breyting loksins ná framgangi með stuðningi meiri hluta hér á þingi svo að við getum horft til framtíðar í þjónustu við fólk með geðrænar áskoranir án þess að fyllast skömm. Ég votta aðstandendum Hrafns Jökulssonar mína dýpstu samúð vegna ótímabærs fráfalls hans. Ég legg til að málinu verði vísað til hæstv. velferðarnefndar og til síðari umræðu að meðferð lokinni.