Sjúkrahúsið á Akureyri.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir þessa góðu fyrirspurn um þetta stóra og mikilvæga mál. Hv. þingmaður fór hér mjög vel yfir hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri sem hornsteinn samfélagsins. Það er ágætt að fá tækifæri til að taka undir með hv. þingmanni og bæta aðeins í því að með vaxandi hlutverki í þjónustu við aðrar stofnanir í samvinnu við Landspítalann, sem annað af sérgreinasjúkrahúsunum, þá er Sjúkrahúsið á Akureyri auðvitað hornsteinn í þessari þjónustu fyrir alla landsmenn og mjög mikilvægt. Spurning hv. þingmanns sneri að þessu mikilvæga verkefni sem er fram undan. Fyrst vil ég segja að aðdragandinn að nýbyggingu legudeilda við sjúkrahúsið hefur tekið langan tíma. Allar ákvarðanir um svona stórar framkvæmdir eiga kannski sammerkt að þær taka langan tíma. Það hefur þegar verið tekið fyrir í samstarfsnefnd um opinber fjármál að hefja þetta ferli og það er mjög ánægjulegt. Fjármögnun er tryggð í fjármálaáætlun og samkvæmt uppfærðri frumathugun Framkvæmdasýslu – Ríkiseigna í september 2021 er áætlaður stofnkostnaður, uppfærður, í kringum 10,5 milljarðar. Heildarbyggingarmagnið verður um 10.500 fermetrar, bara rétt til að varpa því fram hér hversu umfangsmikið verkefni við erum að takast á hendur. Það mun fela í sér þrjár legudeildarbyggingar ásamt tengibyggingu og þetta verður auðvitað gríðarlega mikil framför fyrir sjúkrahúsið í allri þjónustu og fyrir alla sjúkrahúsþjónustu í landinu. Ég kem kannski betur að stöðunni á verkefninu þess utan í seinna svari.