153. löggjafarþing — 61. fundur,  6. feb. 2023.

fundarstjórn forseta.

[15:56]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Virðulegur forseti. Bara í framhaldi af þessu þá virkar það náttúrlega hálfeinkennilega að vera að kenna hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur hvernig hlutirnir virka hérna. Við munum það nú, sem kom fram á þingsetningu eftir kosningar, að hv. þingmaður er starfsaldursforseti okkar hér inni og ætti þess vegna að vera flestum hnútum kunnugri en nokkurt annað okkar. Auðvitað þurfti hún að bera af sér sakir vegna þess að það sem upp á hana var borið var ekki bara það að hafa stofnað einhvern starfshóp heldur var hæstv. forsætisráðherra að nota seinna svar í óundirbúinni fyrirspurn, eins og allt of oft tíðkast, til að koma með einhverja skítapillu á hv. þingmann, þá skítapillu að svört skýrsla Ríkisendurskoðunar, um aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í því að koma einhverjum böndum á sjókvíaeldi, væri hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að kenna. Ríkisstjórnin getur bara átt sitt slor í friði og hætt að reyna að maka því á okkur hin, þetta er bara þeirra slor.