14.12.1978
Sameinað þing: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1537 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)

16. mál, beinar greiðslur til bænda

Forseti (Gils Guðmundsson):

Það hefur orðið að samkomulagi við deildaforseta, að fundur í Sþ. verði ekki öllu lengri. Ef þessar umr., þar sem málefnið er beinar greiðslur til bænda, en ekki innviðir Alþfl., dragast verulega á langinn, verð ég enn að fresta þeim. En ég vona að svo verði nú ekki.