14.12.1978
Efri deild: 27. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í B-deild Alþingistíðinda. (1017)

53. mál, verðjöfnunargjald af sauðfjárafurðum

Frsm. (Stefán Jónsson):

Herra forseti. Landbn. hv. Ed. fjallaði um frv. þetta til l. um greiðslu verðjöfnunargjalds af sauðfjárafurðum á einum fundi og er ekki að orðlengja það, að n. varð sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Bragi Níelsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.