14.12.1978
Neðri deild: 32. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1566 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)

23. mál, tímabundið vörugjald

Frsm. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til staðfestingar á brbl. sem gefin voru út 1. júní í sumar. Fjh.- og viðskn. hefur haft þetta mál til athugunar og er öll sammála um að frv. verði samþ., eins og fram kemur í nál. á þskj. 155.

Hér er um að ræða mjög einfalt mál sem allir hv. alþm. kannast vel við, að í rauninni kemur þetta mál á nýjan leik til frekari umr. í sambandi við annað mál sem er einnig á þessari dagskrá svo að ég sé ekki ástæðu til að hafa um það fleiri orð.

Fjh.- og viðskn. mælir með samþykkt frv.