15.12.1978
Efri deild: 31. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1585 í B-deild Alþingistíðinda. (1102)

99. mál, söluskattur

Frsm. (Eyjólfur K. Jónsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. Hér er um að ræða litla upphæð sem niður falli söluskattur af. Málið hefur þegar verið afgreitt í hv. Nd. Nefndin leggur sem sagt til að málið verði samþ.