15.12.1978
Neðri deild: 34. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1619 í B-deild Alþingistíðinda. (1168)

137. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég vil geta þess, að það var ætlun forseta að reyna að ljúka umr. um þetta mál. Enn eru þó nokkuð margir á mælendaskrá. Til þess að forðast kvöldfund ætla ég að leyfa mér að fara fram á það við þá, sem eiga eftir að tala, að þeir tali ekki ýkjalengi, þannig við getum lokið þessari umr. á skaplegum tíma.