18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1702 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)
39. mál, kjaramál
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Það er ákaflega athyglisvert að hlýða á mál hv. þm. Vilmundar Gylfasonar. Hér er um að ræða till. frá einum þm. Alþfl. um mannúðarmál, þ.e.a.s. að lækka nokkuð þessar nýju skattaálögur á fátæku fólki eða því tekjuminnsta í þjóðfélaginu. Alþfl. bar ekki gæfu til þess að styðja þarna við lágtekjufólkið og þá sem erfiðast eiga í þjóðfélaginu, heldur var hann í fjórum pörtum. Svar hv. þm. við þessu er annars vegar lofræða um Lúðvík Jósepsson til viðbótar þeirri lofræðu sem hann flutti um hæstv. forsrh. á laugardaginn og enn fremur að Sjálfstfl. sé klofinn bæði um verðjöfnunargjald af raforku og vaxtapólitík í landinu. (VG: Og Albert Guðmundsson.) Og Albert Guðmundsson já. M.ö.o.: fyrst ágreiningur er í Sjálfstfl. um Albert Guðmundsson, raunvaxtastefnu og verðjöfnunargjald af raforku, þá er það ósköp eðlilegt að Alþfl, geti ekki stutt tillögu hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur.