18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (1264)

144. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Á þskj. 200 flyt ég frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. Frv. þetta er byggt á þeim umsóknum sem borist hafa dómsmrn. og eru þar taldar fullnægja skilyrðum sem sett hafa verið af allshn. beggja þd., sbr, nál. á þskj. 830 á 99. löggjafarþingi, 2. maí 1978.

Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.