18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (1266)

131. mál, flugvallagjald

Fjmrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á l. nr. 8 frá 27. febr. 1976, um flugvallagjald. Samkv. lögum nr. 8 frá 1976, um flugvallagjald, er gjald vegna utanfarar 1500 kr. fyrir þá sem eru eldri en 12 ára, 750 kr. fyrir börn á aldrinum 2–12 ára, sbr. 2. gr. laganna. Samkv. 3. gr. sömu laga er einnig innheimt flugvallagjald vegna flugferða innanlands, og er það 200 kr: fyrir þá sem eru 12 ára og eldri, en 100 kr. fyrir börn á aldrinum 2–12 ára. Samkv. 5. gr. laga nr. 77 frá 1977, um skyldusparnað og ráðstafanir í ríkisfjármálum, var lagt 100% álag á flugvallagjald vegna utanlandsferða á árinu 1978, þannig að það varð 3000 kr. fyrir fullorðna og 1500 kr. fyrir börn. Þessi hækkun er tímabundin, því að hún gildir aðeins til árslok 1978. Í fjárlagafrv, fyrir árið 1979 er hins vegar gert ráð fyrir að innheimta flugvallagjalds verði óbreytt frá því sem verið hefur á þessu ári.

Eins og ég sagði áðan rennur heimildin til 100% álags á flugvallagjald út um næstu áramót. Ef tekjuáætlun fjárlagafrv. á að standast er því nauðsynlegt að halda áfram að innheimta umrætt gjald með 100% álagi á næsta ári eins og gert hefur verið á árinu 1978. Er því lagt til í þessu frv., að við lög um flugvallagjald bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða á þá leið, að gjöld samkv. 1. mgr. 2. gr. laganna skuli innheimt með 100% álagi á árinu 1979, Hér er því ekki um hækkun að ræða á umræddu gjaldi, heldur er einungis lagt til að sama gjald verði innheimt á árinu 1979 og gert hefur verið á þessu ári.

Talið er að tekjur af flugvallagjaldi á árinu 1978 verði um 450 millj. kr., en samkv. fjárlagafrv. fyrir árið 1979 er áætlað að tekjur af því verði 470 millj.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða nánar um frv., heldur vísa ég til grg. þeirrar, sem því fylgir, og legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.