18.12.1978
Neðri deild: 35. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (1271)

8. mál, niðurfærsla vöruverðs

Frsm. minni hl. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Það er í sjálfu sér tilgangslaust að halda uppi málflutningi í þessu máli. Eins og segir í áliti minni hl., okkar fulltrúa Sjálfstfl. í hv. fjh.- og viðskn., álit okkar er á þskj. 208, þá hafa ákvæði frv. þegar verið framkvæmd á ábyrgð ríkisstj. og þess vegna við hæfi að stjórnarflokkarnir standi einir að staðfestingu brbl. sem þetta frv. er flutt til staðfestingar á.