19.12.1978
Sameinað þing: 38. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1767 í B-deild Alþingistíðinda. (1320)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 19. des. 1978.

Formaður þingflokks Alþfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Kjartans Jóhannssonar, 2. þm. Reykn., sem vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér samkv. 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Ólafur Björnsson útgerðarmaður í Keflavík, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Þorv. Garðar Kristjánsson,

forseti Ed.

Hér liggur fyrir kjörbréf Ólafs Björnssonar. Ég óska þess nú að kjörbréfanefnd taki það til athugunar og gef 7 mínútna fundahlé meðan rannsókn kjörbréfs fer fram. — [Fundarhlé.]