19.12.1978
Efri deild: 37. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1774 í B-deild Alþingistíðinda. (1333)

145. mál, almannatryggingar

Frsm. (Bragi Níelsson):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. kom saman á einn fund í gær og fjallaði um frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, 145. mál, stjfrv. á þskj. 213 sem felur í sér lækkun á sjúkratryggingagjaldi. N. mælir með samþykkt frv., en tveir nm., Ragnhildur Helgadóttir og Oddur Ólafsson, skrifuðu undir nál. með fyrirvara.