20.12.1978
Neðri deild: 39. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1851 í B-deild Alþingistíðinda. (1472)
23. mál, tímabundið vörugjald
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Ég tel eðlilegt að þessari umr. verði frestað og hv. fjh.- og viðskn. gefist færi á að athuga hvað hér er um að ræða. Ég tel að málinu sé ekki stefnt í hættu, því að hér er um að ræða síðustu umr. málsins. Það er hluti af þeim stóra pakka, sem ríkisstj. og stjórnarflokkarnir hafa flutt inn á Alþ. síðustu dagana, og þess vegna ástæða til að n. þessarar hv. d. fái tækifæri til athugunar á þessu máli.