20.12.1978
Neðri deild: 39. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1851 í B-deild Alþingistíðinda. (1475)

39. mál, kjaramál

Fjmrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Eins og ég tók fram í framsögu minni fyrir frv. um tímabundið vörugjald eru þessi mál nátengd. Ég gerði grein fyrir því áður, í hverju væru fólgnar þær breytingar, sem hér er lagt til að gera, og sé ekki ástæðu til að hafa um það fleiri orð. En mér finnst eðlilegt að það mál fari einnig til n. og verði athugað jafnhliða hinu, þar sem þessi mál tengjast svo mjög saman.