21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1876 í B-deild Alþingistíðinda. (1514)

23. mál, tímabundið vörugjald

Frsm. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Hér er um að ræða mál sem er komið til d. aftur frá Ed., en þar tók þetta mál nokkurri breytingu frá því sem samþ. hafði verið hér í þessari d. áður. Sú breyting, sem gerð var í Ed., er fyrst og fremst um að hið almenna vörugjald hækki úr 16% í 18%, en till. hafa verið gerðar um það hér áður og það er öllum hv. alþm. kunnugt.

Fjh.- og viðskn. hefur athugað þessa breytingu, sem gerð hefur verið í Ed. á frv., og meiri hl. n. fellst á þessa breytingu. En ljóst er, að minni hl n., fulltrúar Sjálfstfl., eru andvígir þessari breytingu. Það er í samræmi við það sem komið hefur fram hjá þeim áður í sambandi við umr. um þetta mál.