21.12.1978
Neðri deild: 40. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (1540)
146. mál, heimild til lántöku vegna lánsfjáráætlunar 1978
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Hér er um að ræða ákvörðun fyrri ríkisstj. Ég tel höfuðnauðsyn á því, að Ísland komist í eðlilegt og öruggt samband við umheiminn, sem ekki verður gert með öðru móti en þessu svo að betur megi fara, og segi því já.